Við erum tvær úr tungunum og til í mars 2pack :)

29.03.2007 08:35:07 / almridur

Of mikið mont borgar sig ekki

ÞAð er sko búið að sanna sig... því seinustu tvo daga er búið að vera rigning, þrumur og eldingar....:S hefði átt að monta mig aðeins meira á þessu yndislega veðri... en þrátt fyrir það er þetta búið að vera alveg æðisleg ferð... við Veigar fórum 9 holur í gær, hann í magapokanum framan á mér með helgu í golfbíl... þetta var þó eftir að þrumurnar og eldingarnar hefðu gengið yfir...

Ég er víst orðin einu ári eldri og varð það á þriðjudaginn.... var svo 100% viss um að Heiðar myndi gleyma deginum, kom niður á æfingasvæði og fékk engan koss til hamingju með afmælið, bara góðan daginn8|  mín ekki sátt... svo fer hann að spila og svo fara sms-in að rigna inn og meira að segja frá bróður hans:!: og hann ekki búin að muna eftir deginum.... Svo kemur kvöldmatur og ég spyr hvort við eigum ekki að panta eina hvítvín í tilefni dagsins og hann strax bara jú endilega.... ég spyr veistu hvaða dagur er?? já auðvitað segir hann...  en enginn koss enn... svo förum við niður og ætlum að horfa á Borat með hópnum haldiði að hann komi ekki með köku sem hann lét baka fyrir mig með kerti og blómum:D og fékk ég loksins til hamingju  með afmælið kossinn frá honum.... En vá hvað hann hefði fundið fyrir því ef hann hefði gleymt því :haha:

Núna ætla ég út á svalir og vonast til þess að blái liturinn á himninum verði alsráðandi og gula fíflið láti þá sjá sig svo maður mæti nú ekki enn gegnsæjari á klakan heldur enn áður en maður fór út í "sólina":^)

Lov ya

Guðríður ekki brúna 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 16:46:32 / almridur

lélegur árangur

Já það er ekki hægt að segja annað en að Almríður sé alls ekkert að standa sig í bloggi... Ég afsaka mig með því að það er gríðarlega mikið búið að vera að gera hjá mér... Heiðar kom heim þarna 12 mars og var það MJÖG gott að fá hann heim :D þá beið okkar undirbúningur fyrir það sem allir héldu að væri aðeins skírn á litla gullmolanum, en nei nei við höfðum ákveðið fyrir nokkru að láta pússa okkur saman í leiðinni... fínt að vera með allt á hreinu þegar maður leggur af stað út í heim saman... Þessi dagur var í alla staði frábær og toppuðu yndislegu vinkonur mínar daginn með herbergi á Radison SAS fyrir okkur hjónin 8) mamma og pabbi voru með Veigar yfir nóttina og gekk það auðvitað eins og í sögu... enn ekki hvað... Veigar verður bara þægari með hverjum deginum...

 

Núna er ég stödd í "brúðkaupsferðinni" minni, Heiðar var sem sagt að fara í æfingaferð með klúbbnum okkar og ákvað ég að skella mér með eftir þrýsting frá stelpunum í klúbbnum... Okkar beið þessi líka fína svíta þegar við mættum á hótelið... ekki slæmt og svo er ég bara búin að vera í algjörri afslöppun síðan við komum... dagurinn í gær var t.d : 

vaknað 9

morgunmatur 9:30

Göngutúr: 10-11:30

Veigar svaf frá 11:50 - 16:00

á meðan sat ég fyrst á svölunum og las í 2 tíma og færði mig svo á sundlaugarbakkan í klukkutíma...

frá 16:00 - 18:00 sat ég bara í grasinu og horfði á krakkana spreyta sig á stuttaspilsprófi...

Svo var það bað og matur... og sofnað svo um 22:30...

þetta er svona dagurinn hjá mér líka í dag... nema þá er það SPA í staðinn fyrir bað 8)  þetta er sko keppnis hérna á Spáni...

 

það eru myndir inná síðunni hjá Veigari fyrir ykkur :haha:

 

En þangað til næst

see ya

Guðríður 


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 19:55:10 / almridur

crazy að gera...

úfff það er svo mikið að gera hjá mér næstu dagana... eða þangað til 23 mars og þá verður bara slappað af á SPÁNI8)

En skírt verður frumburðinn þann 17 mars... það verður svaka veisla heima hjá Unu og Steina... hvað haldiði að barnið muni heita... það yrði nú húmor að skíra hann eitthvað allt annað en Veigar... :D

Svo er að pakka niður fyrir Svíþjóð... við munum flytja af klakanum þann 8 apríl.. það er páskadagur... fattaði það ekki þegar ég pantaði:S hihi smá klaufi... en Sessa þessi elska ætlar að hýsa okkur þangað til draslið okkar kemur:haha: vá hvað ég er farin að hlakka til... get hreinlega ekki beðið;)

Heiðar á aðeins 6 daga eftir í Portúgal... það verður nú fínt að fá hann heim:P

 

ekkert meira að frétta af mér...var fyrir norðan í viku... sakna þess að búa þar... takk fyrir góða daga stelpur... sérstaklega sigrún mín;)

gs


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 01:24:53 / almridur

Vei vei vei vei vei

Nú er sko annað hljóð í mér en síðast þegar ég skrifaði... því við erum búin að fá íbúð í Svíþjóð og þá er þetta sko orðið alvöru fyrir mann...:haha: allavega er mér svo mikið létt eftir að hafa fengið email um að við gætum fengið íbúð sem Sessa vinkona skoðaði á fimmtudaginn og leist svona vel á;) Takk þúsund sinnum Sessa fyrir hjálpina

Þetta er 3 herbergja íbúð í 1 árs húsi... hún er 75 fm og það sem er fyndnast við hana er að hún er á 2 hæðum 8)  bara keppnis að vera á tveim hæðum.. á neðri hæðinni er stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu og á eftri hæðinni eru 2 svefnherbergi og annað baðhergi:P Með þessari yndislegu íbúð fylgir þvottavél, þurrkari og það besta... UPPÞVOTTAVÉL8) keppnis... svo eru svalir sem eru líka keppnis og eru þær litlir 15 fm... þar verður notalegt að sitja í sólinni í sumar og bragða á einum eða tveimur öl... hver er memm??

 

En vildi bara deila þessari yndislegu íbúð með ykkur... já og ekki skemmir fyrir að þetta kostar ekki hendina af eins og maður óttaðist...

 

kv

Guðríður 


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 13:15:27 / almridur

Allt ónýtt

Já er ekki alveg sátt núna:evil:

Þannig VAR mál með vexti að Heiðar er á leiðinni í æfingaferð með klúbbnum okkar í lok mars... mig langaði alveg skuggalega með þar sem golfvinkonur mínar voru allar á leiðinni með... Fyrir viku sló ég til og talaði við Inga þjálfara um að við Veigar myndum koma með í þessa ferð, það var minnsta málið og átti þetta að vera algjört leyndarmál fyrir Heiðari, því ég ætlaði að suprisa honum á flugvelllinum... mæta bara með Veigar og láta stelpurnar taka töskuna okkar með sér;)  rosalega skemmtilegt.... Svo var skráð mig, en ekkert spurt um Veigar, þannig Ingi tjékkaði nú á því að konan hjá Úrval Útsýn ætlaði að tjékka hvað þyrfti um hann og hafa svo samband við Inga aftur... hann tók það sérstaklega fram að þetta ætti ekki að komast til Heiðars... en nei haldiði að kellingabeiglan hafi ekki sent heiðari mail... til þess að spyrja um nafnið á syni hans því hún væri að bóka okkur í ferðina hjá GKJ:klikk: Heiðar hringdi því í mig og spurði hvort það væri ekki eitthvað sem mig langaði að segja honum???? ARG ég var svo reið... hlakkaði ekkert smá til að koma honum á óvart...:$

 

EN AFMÆLI ÁRSINS Í KVÖLD.... ÞETTTA MUN BARA VERA FÁMENNT EN ALLT SAMAN GULLMOLAR SEM MÆTA Á SVÆÐIÐ... NORÐANPÍURNAR MÆTTAR Á SVÆÐIÐ OG DRESSIÐ KOMIÐ:D

SEE YA

Guðríður 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 18:32:56 / almridur

25 ára

Já kellingin er orðin 25 ára. Jább ég og 768 aðrir hér á landi. Ég er ekki frá því að ég hafi séð grátt hár í morgun, þó ekki í fyrsta skipti en samt gaman að tengja það svona við aldurinn, orðin hálf-fimtug. Afmælisbarnið ég fékk loksins pakka frá kallinum mínum þegar ég vaknaði, aðeins búið að taka hann sjö ár að skilja að það á að fá pakka í rúmið á afmælisdaginn sinn og fékk líka eitt stikki barn:D:D Aldís ákvað að vera góð við mig og átti strák í dag, veit ekki hvað hann er stór hann var bara að skjótast út þegar ég talaði við hana en ætli ég geti nokkuð hamið mig um að fara að kíkja á hann í kvöld........fór í vinnuna með kökur sem ég bakaði í gærkvöldi, bakaði nokkrar, sem tókust ekkert svo vel og er það ofni sem er ekki í uppáhaldi að þakka:^ kannski að það hafi spurst út enda ekki mikið af fólki búið að láta sjá sig í dag, en ég borða þetta þá bara ein í rólegheitunum, óhepnar þið bara, eða ég það fer eftir því hvernig það er litið á þetta.

Að öðru...þá er það afmæli ársins, við Gudda erum aftur orðnar tvær með það, María hætti við, hefði ekki trúað því að hún mundi vera svona óákveðin;) Allir vinir okkar að láta sjá sig svo, lofum stanslausu stuði, allavega ætlum við að skemmta okkur og vonandi sem flestir með okkur bara.

Ætla svo að enda þessa afmælisfærslu á að setja inn vísuna sem Friðrik sem vinnur með mér gaf mér í dag, hann gaf mér líka spólu sem ég mun græða á í framtíðinni, með tónlist sem er ekki fyrir börn eða geðveika sagði hann;) svo ef einhver á svona gamaldags tæki með spólum þá mundi ég vilja fá að spila þessa spólu í því.

Fjórðungs aldar aldri nær

Alma Rún á þessum degi.

Mild og góð og mjög svo fær

móðir ung á lífsins vegi

 

Sálarhag og hugarþel

hún í sínu starfi bætir.

Á allar lundir vinnur vel

veitir stoð og margan kætir

 

óver en át

Alma litla afmælisbarn


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 23:54:07 / almridur

stór afmæli og ræktin...

Já lesendur góðir... nú erum við skvísur að verða fimmtugar... hvorki meira né minna8) og í því tilefni ætlum við að halda veislu:D já ég veit að nú iðið þið í sætunum af spenningi... en þið þurfið að bíða þangað til 17. febrúar... þá verður slegið upp veislu á GrandRokk:haha: já á þessum bæ er haldið almennilega uppá svona stórafmæli... viljum við biðja ykkur að taka dagsetninguna frá en boðskort með nána ri upplýsingum og óskalista verður sent út á næstu dögum;)

En af mér er allt gott að frétta.. barnið stækkar og stækkar og fór ég í ræktina í dag til þess að varna því að ég stækki með því:S maður er nú búin að vera með bumbu nógu lengi... algjör óþarfi að rembast við að halda henni við:!: get þó ekki sagt að maður sé í sínu besta formi... 20 mínútur á skíðavélinni, nokkrar armbeygjur og smá meira var alveg nóg fyrir minn smekk þennan morguninn:lol: enn það kemur... verið að útbúa þjálfunarprógram fyrir mig í þessum töluðum orðum af hinni yndislegu Oddu einkaþjálfara... vei vei... Veigar kom með í ræktina og sat eins og ljós allan tíman.. hann er náttúrulega svo vel upp alinn að það er saga á næsta bæ...

en nú ætla ég í rúmið, því mín var komin á fætur kl 8 í morgun vegna ræktarferðarinnar...

en munið að taka 17 febrúar frá

knús til allra
guðríður

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 17:36:39 / almridur

reykjavík smeykjavík

Í dag var dásamlegt veður.....snjór og ekki ský á lofti. Þar sem ég er nánast búin að koma mér fyrir ætlaði ég að njóta þess að fara út að ganga með barnið í eftirdragi á stiga-sleða...... sem ég ætlaði að kaupa. En mér til mikillar furðu var ekki hlaupið að því að finna eitt stk. sleða. Ég fór í Hagkaup, örninn, einhverja útivistarbúð í skeifunni sem ég man ekki hvað heitir, Everest, Útilíf, intersport, europris, rúmfó, byko, markið, dótabúðir....en það eru ekki til sleðar á svæðinu (reyndar voru til 2 svartir og í dótabúðinni einn sem leit út eins og geimskutla) Þegar ég var búin að pirra mig yfir þessu fór ég annan hring og leitaði eftir annarskonar sleðum, en engir til nema bara svartir...og það er ekki fallegur litur fyrir 3. ára skottu.
Til að toppa þetta hringdi ég norður í Vidda í skíðaþjónustunni, hann átti Stiga-sleða í nokkrum litum, hann átti líka annarsskonar sleða, í rauðum og hvítum. Verð að segja að þetta er frekar slakur árangur, að norðurlandið bjóði upp á betra úrval en allar verslanir í Reykjavík til samans....nú fer ég bara ekkert út, er hundfúl og búin að plata pabba til að fara og versla við hann Vidda og senda mér eitt stk. sleða.

Einnig langar mér að láta alla vita að ég er loks farin að finna að ég eigi heimili hérna, fann ekki þá tilfiningu í hinni holunni, jafnvel þó að þessi sé orðin pínu gömul og þreytt þá er þetta heimili....mjög sátt við þetta og er bara að bíða eftir að þið kíkið í heimsókn

bleble Alma

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 12:32:46 / almridur

Fólk mitt gott!!!

Þá er ég að fara að flytja í vikunni, það kætir mig ekki svo mikið að þurfa að standa í því helvíti, en ég hlakka þó til þess að fara í aðra íbúð. Langar þess vegna að auglýsa eftir auka höndum sem vilja flýta fyrir því ég vill helst rumpa þessu af á einum degi, hviss bamm búmm....Lítið að frétta af mér annars, er þó að komast í einhvern djammfíling, er að skipuleggja óvissuferð í vinnunni fyrir næstu helgi, sem verður auðvitað rosaskemmtileg og svo er það undirbúningur gelluferðarinnar sem á að fara í 30. mars....30. mars takið eftir, það eru tveir mánuðir í það og ég get bara varla beðið, er búin að plana svo margt í huganum sem við getum gert þarna en á sennilega eftir að gleyma þegar nær líður. Þarna á milli á ég þó afmæli sem gerir biðina mögulega aðeins auðveldari, þ.e.a.s. ef ég held þrusu veislu.........og já líka risa mataboð hjá stelpunum mínum næstu helgi. Hvernig getur maður verið annað en skemtannasjúkur þegar svona margt er á stefnuskránni.
Það ríkir þó sorg í mínum huga þessa dagana, þegar ég er ekki að skipuleggja skemmtanir, það er nebbla þorrablótið á Svalbó, sem ég vildi síður láta mig vanta á, er búin að bíða eftir því síðan í fyrra þar sem þetta er eitt af því skemtilegasta sem ég geri.....er miðurmín yfir að hafa tekið þá skinsamlegu ákvörðun um að fara ekki á það:( þetta var erfið ákvörðun og ég hef fengið símtöl og hótanir frá nokkrum aðilum sem geta ekki hugsað sér að upplifa þetta án mín;) nei án gríns, fólk ætlar ekki einu sinni að mæta....
Telma er fyrir norðan, foreldrarnir báðir að vinna svo mikið um helgina og hvar er betra að geyma hana en hjá ömmunni sinni.
Hef bara ekki meira að segja í bili, júúú nema það að ég var að spá í hvernig ég á að halda upp á þetta blessaða afmæli, held að við Gudda höldum saman upp á 50 ára afmæli, svo það er stórafmæli þar sem skylda verður að koma með afmælisgjöf, en hvað á að gera, það er spurningin...bjóða fólki í mat( þá litlum hóp) fá sal og hafa léttar veitingar og náttla áfengi......koma svo, hvað á að gera í þessu?

Alma

» 8 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 22:58:18 / almridur

Er í alvöru liðinn einn mánuður??

Já það er einn mánuður síðan sá stutti kom í heiminn... mér finnst þó eins og hann sé búin að vera til í mun lengri tíma.. hef tvisvar staðið mig að því að tala um "þegar hann var lítill"... :haha: en hann er víst enn þá lítill er mér sagt...
Það voru skil á ritgerðum fyrir útskrift í febrúar á miðvikudaginn siðasta.... ég náði EKKI að klára mína til að skila:S ekki alveg nógu gott... en betra að skila góðri ritgerð seinna heldur enn lélegri fyrr... því ekki er ég að fara að nota þessa BA gráðu mína á næstunni... ætla bara að hafa það notalegt með honum Veigari næstu mánuðina...
Við erum byrjuð á fullu að leita okkur að íbúð í Lund til að leigja8) og er ég orðin allsvakalega spennt fyrir þessum flutningum... og já höfum það á hreinu að ég mun afneita Ölmu sem vinkonu til æviloka ef hún kemur ekki að heimsækja mig til Svergie... þið þarna vinkonur þið skuluð bara DRU**** í heimsókn til mín í þetta skiptið... því ekki voruð þið margar sem létuð sjá ykkur í Danmörku þegar ég bjó þar:$

Þannig: Rétt upp hend sem ætla að koma i heimsókn....


En nú skora ég á hinn bloggfélagann minn að koma með svo sem eina færslu...

KV

Guðríður


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 23:51:16 / almridur

Fyrsta flugferðin

Já við Veigar skelltum okkur til Ak.City í síðustu viku... Heiðar stakk af til USA og ég ómögulega nennti að vera ein heima... Við tókum flugið á miðvikudagskvöldið og komum heim í gær þar sem ég átti von á Heiðari heim í morgun... en nei þá ruglaðist hann á dögum og kemur ekki fyrr en á morgun8| þvílíkur vitleysingur....
En fyrsta flugferðin gekk bara nokkuð vel... Veigar var ekki þetta pirrandi ungabarn sem maður heyrir oft í þegar maður flýgur heldur þagði hann eins og hann fengi borgað fyrir það báðar leiðir... 8)
Á norðurleiðinni var ég pínu stressuð... aldrei flogið með barn áður og hvað þá ungabarn... ég vissi að ég átti að hafa hann á brjósti í flugtaki til að hann fengi ekki hellur... jú mín rýfur út búbban þegar hreyflarnir fara að snúast... skelli prinsinum á og um það bil 2 mínútum seinna steinliggur hann... og vélin ekki farin að hreyfast... það var ekki aðalmálið, þvi ég hreinlega hélt að barnið væri hætt að anda þvi svo steinsofandi var hann... það var sama hvað ég gerði hann haggaðist ekki8| það var ekki fyrr en ég tróð hendinni inn undir fötin hjá honum og fann magan lyftast við andadráttinn að ég andaði léttar... var orðin nett stressuð og barasta næstum búin að hringja á flugfreyjunar:^) hefði verið nett aulalegt.... hihi en restin af ferðinni gekk smurt...
Suðurleiðin gekk öllu betur hann náði að halda sér nokkuð vakandi til að fá brjóstið eða snudduna... eina sem var virkilega pirrandi var karlpungurinn fyrir framan mig sem var búin að sjá mig halda á ungabarni þegar hann settist... haldiði að karlfíflið hafi ekki hallað sér aftur við fyrsta tækifæri... ég varla gat andað í sætinu með barnið í fanginu... djö þoli ég ekki þegar fólk sýnir enga tillitssemi í svona nýþröngum flugvélum...+

en ferðin var í allastaði æðisleg, yndislegt að komast heim til mömmu og pabba og láta stjana við sig:D

En segi þetta gott í bili...
Gudda

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 15:13:02 / almridur

Veigar Heiðarsson

Já litli prinsinn er mættur á svæðið... kom í heiminn þann 21. desember 2006 og var 3935 gr sem gera tæpar 16 merkur og 54 cm. Ég vildi óska að ég gæti sagt að þetta hafi gengið eins og í sögu en því miður var ég ekki svo heppin... Ég fékk verki aðfaranótt 21. des en náði alltaf að sofna á milli þeirra þangað til klukkan var orðin 6 þá sofnaði mín ekkert meira... Við fórum upp eftir klukkan 8.. þar tók á móti okkur þessi yndislega ljósmóðir sem komst að því að útvíkkunin var komin í 6... fyrir þá sem ekki vita þá þarf hún að komast uppí 10... þannig allt leit út fyrir að þetta gengi snöggt fyrir sig :o við fórum smá rúnt og komum aftur klukkutíma seinna... útvíkkunin var enn þá 6 :lol: þvílíkur bömmer og vitiði klukkan 12 var hún ennþá 6 :whut:... hélt ég myndi grenja þá... en það þýddi víst lítið... það var tekið á það ráð að sprengja belginn því vatnið vildi ekki koma að sjálfum sér... það jók útvíkkunina í 8.. vúhú.:haha:. en vitiði að klukkan 15 var hún enn þá í 8!!!! HALLÓ hvað var málið.. þá var ég farin að vera full andstyggileg við nærstadda og farin að sparka full mikið í rúmið og öskraði því á mænudeyfingu... sem að ég fékk loksins á endanum og þakka ég guði fyrir það... munaði minnstu að Veigar fengi nafnið Ágúst því það var nafnið á lækninum sem setti upp mænurótardeyfinguna :P... þvílík himnasending og verður þetta það fyrsta sem ég bið um þegar ég mæti upp eftir með næsta barn... alveg klárt mál... JÆja mín hætt að finna fyrir verkjum og útvíkkunin kláraðist :D þá kom rembingurinn... en lítið mjakaðist hausinn niður mjaðmagrindina og við mæðgin vorum svo búin á því að ákveðið var að ná í prinsinn með sogklukku... sogklukka er ekki eins og ég hélt eitthvað í líkingu við drullusokk heldur er þetta samansett úr járnkeðju og járnhaldfangi 8|sem er svo fast við sogklukkuna sem fer á hausinn á barninu... ekkert neitt rosalega spes... en Veigar kom loksins í heiminn klukkan 18:07... langt þangað til ég geri þetta aftur.... En hann er alveg svakalega góður og heyrist ekki mikið í honum nema þegar honum vantar að borða :) næturnar ganga fínt, hann sefur góða lúra á nóttunni og leyfir foreldrum sínum að hvíla sig... allavega í bili... En nú kallar Veigar á brjóst og þarf víst að sinna því...

Þangað til næst

Gudda mamma :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 22:40:46 / almridur

Hann er kominn

Það hlaut að koma að því að þetta blessaða barn léti sjá sig. Ég var búin að sætta mig við það að missa af fæðingunni, þar sem ég var að fara norður í dag en sem betur fer fór Gudda af stað í nótt og ég fékk að taka þátt í þessum merka atburði....Ætla að láta Guddu segja frá hvernig þetta gekk allt fyrir sig, en aðeins segja að þetta var stórkoslegt og þegar hann kom í heiminn grét ég eins og ég fengi borgað fyrir það, algjör auli ég.
Fyrsti stákurinn komin í stelpuhópinn og hann er æði, ekki ein krumpa á honum og vá.. já bara fullkominn. Til hamingju Gudda og Heiðar
Annars kemst ég ekki norður fyrr en í nótt, ætla að leggja af stað fimm eða sex þar sem veðrið á að vera orðið fínt þá. Ætla að keyra ein með Telmu á klessta bílnum mínum sem keyrt var aftan á.....Get ekki beðið eftir að komast norður og fara í jólaskap:D
Vildi svo láta fólk vita að jólakortin eru tilbúin eða allavega búið að skrifa á þau en ég á eftir að framkalla mynd í þau og senda svo þau gætu komið seinna en þau ættu að gera, vonandi er það í lagi.
Kveðja Alma væluskjóða


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 00:13:31 / almridur

Jólin eru að koma....

Jólin koma senn.... og vá hvað mig hlakkar hrikalega til...

ég er svo mikið jólabarn að þegar nálgast fer jólin eins og núna þá fer ég að iða... á erfitt með að sofa og fleira í þessum dúr sem flestir þekkja frá barnæsku en þetta eltir mig enn.... ekki bætir úr skák að kúturinn í mallanum á mér er í svona líka feikna stuði og er búin að vera í líkamsrækt í allt kvöld og ekki á því að leifa mér að sofna á kristilegum tíma í kvöld...

Kláraði allt fyrir jólin í dag... setti jólakortin í póst (þið sem ekki fáið kort... óheppin...hef þá gleymt ykkur), setti jólapakka í póst og allar hinar jólagjafirnar klárar... Ohhhh hvað þetta var ljúft... að eiga ekki eftir að þurfa að standa í röð eftir röð við að kaupa jólagjafir:haha: Alma mín er víst ekki í sömu sporum á held ég eftir að gera ALLT saman... nema að kaupa jólagjafirnar... en þeim á að ég held eftir að pakka inn, skrifa jólakortin, taka jólamyndina, pakka niður og kaupa þær jólagjafir sem voru í pokanum sem týndist í smáralind á mánudagskvöldið... Aldrei að vita nema ég bjóði fram hjálp mína svo að hún missi ekki geðheilsuna á morgun:P

En núna ætla ég að skríða aftur í rúmið og gá hvort að púkinn inní mér gefi mér ekki smá frið til að sofna8|

See ya

Guðríður


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 12:45:25 / almridur

+5 dagar

Já nú er komin 17 desember og ég ekki enn orðin mamma... það er allt búið að reyna... nema stigagöngu... ætli hún verði ekki reynd við fyrsta tækifæri... það væri gott að vera fyrir norðan og geta skellt sér í kirkjutröppurnar8)

Í gær var lokahóf hjá meistaraflokki GKJ og létum við okkur ekki vanta og var alveg geggjað stuð... sumir voru betri en aðrir í actionary og fer sögum af honum Eyjólfi að smyrja mann og annan eftir þetta kvöld:haha: En við fórum svo heim til Halldóru og Guðjóns og komum ekki heim fyrr en 4:15 og er frekar langt síðan mín hefur verið svona lengi úti... en hvað lætur maður 9 mánuða + meðgöngu stoppa sig frá svona partýi nei held ekki...

Áfram er bið bara á mínu heimili og allir búnir að kalla á litla kúlubúan en hann kemur ekkert... þrátt fyrir það þá er ég búin að dunda mér (og alma mín líka) við að gera fína barnalands síðu... Sorry Arnrún ég veit ég sagðist ekki ætla að opna svona fyrr en kúturinn væri kominn í heiminn en nú er allt reynt til að fá barnið í heiminn;) og hver veit nema að þetta hjálpi til...

En slóðin er allavega: http://12des.barnaland.is

endilega kíkkið á flottu síðuna okkar...

nú vonandi í síðasta skipti skrifa ég:

knús

gudda og bumban


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill
margt áhugavert